Leiðbeiningar um notkun þurríss
Geymsla
- Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga þegar halda á mat eða drykkjum köldum með þurrís.
- Ef varan má ekki frjósa, forðist að láta hana komast í beina snertingu við þurrísinn. Hægt er að einangra vöruna frá þurrísnum með því að nota t.d. pappa eða dúk
- Ef mögulegt er, setjið þurrískubbana ofan við vöruna sem á að kæla. Koldíoxíð sem gufar upp frá þurrís er þyngri en andrúmsloft og leitar því niður á við.
- Hægt er að hægja á uppgufun með því að fylla upp í auð svæði í kringum ísinn með frauðplasti eða dagblöðum.
Framreiðsla
- Þurrís heldur ís og öðrum frystivörum köldum jafnvel þó heitt sé úti. Drykkir haldast einnig kaldir.
- Matvæli sem borin eru fram haldast köld í langan tíma, jafnvel útivið ef þau eru sett ofan á kubba af þurrís.
- Þurrís er einnig hægt að nota til að koma í veg fyrir að klaki fyrir drykki bráðni. Setjið ekki þurrís í drykki.
Skreyting
- Þurrís er oft notaður til að búa til þoku í leikhúsum. Skál af heitu vatni og nokkrar perlur af þurrís gerir kraftaverk og mun örugglega draga til sín athygli.
- Þegar þoka búin til skal nota eins heitt vatn og mögulegt er, (75-80°C) og bæta þurrís við í smáum skömmtum svo að vatnið kólni ekki of hratt.
Leiðbeiningar um notkun þurríss -
Leiðbeiningar um notkun þurríss -
Leiðbeiningar um notkun þurríss -
Leiðbeiningar um notkun þurríss -
Leiðbeiningar um notkun þurríss -
Leiðbeiningar um notkun þurríss - Panta
, No.
Panta
Leiðbeiningar um notkun þurríss - Hafa samband