popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Geymsla þurríss

Þurrís gufar hægt upp í gas ef það er geymt í umhverfi sem er heitara en þurrísinn sjálfur. Þeim mun heitara sem umhverfið er, þeim mun hraðar gufar ísinn upp.

Líftími þurríssins byggist á magni, umbúðum og geymslu. Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi um uppgufunartíma.

  • 1 kg við stofuhita á borði, gufar upp á 6-8 tímum
  • 10 kg við stofuhita í frauðplastkassa, gufar upp á 1-2 dögum
  • 20 kg við stofuhita í frauðplastkassa, gufar upp á 3-4 dögum
  • 20 kg í kæliklefa í frauðplastkassa, gufar upp á 4-5 dögum

Bestu geymsluaðstæður fyrir þurrís eru í frauðplastkassa eða kæli sem er hafður eins kaldur og mögulegt er, t.d. utandyra yfir vetrartímann og í kæliklefa yfir sumarið. Munið að loka frauðplastkassanum.

Lítið magn þurríss (hámark 20 kg) er hægt að geyma í frauðplastkassa í kæliklefa. Þurrís á ekki að geyma í hefðbundum heimilisfrystum eða ísskápum, þar sem þurrísinn er miklu kaldari en slík tæki eru hönnuð fyrir.

Þeim mun meira magn vel pökkuðum þurríss, þeim mun minni uppgufun. Hægt er að hægja á uppgufun með því að pakka ísnum eins þétt og hægt er og með því að fylla upp í auð svæði með frauðplasti eða dagblöðum. Með öðrum orðum, þurrís skal pakka þannig að sem minnst andrúmsloft komist að þurrísnum.

Eitt kíló af þurrís myndar u.þ.b. 530 lítra af koldíoxíð. Leyfið þess vegna örlitla uppgufun frá umbúðunum til að forðast þrýstingsmyndun.

Dry ice