popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Geymsla gashylkja

Gashylki eru stór, þung og tiltölulega óstöðug vegna þess hve lítið ummál botninn hefur í samanburði við hæð þess. Það er mjög mikilvægt að fylgja nokkrum einföldum reglum þegar gashylki eru geymd.

Geymið hylkin rétt!

  • Geymið hylkin í vel loftræstu öruggu rými, helst utandyra á jafnsléttu, á steyptu undirlagi, í skugga og undir þaki.
  • Geymið hylkin lóðrétt og gætið þess að þau geti ekki fallið á hlið.
  • Geymið full og tóm hylki aðskildum. Hagið skipulagi birgða þannig að elstu hylkin notist fyrst.
  • Raðið hylkjunum eftir eiginleikum gastegundanna (eldfim, óvirk, eldnærandi o.s.frv.) Geymið ekki eldfim hylki með öðrum hylkjum.
  • Setjið upp öryggismerkingar á geymslusvæði í samræmi við lög og reglur.

Kynnið ykkur:
  • Eiginleika gastegundarinnar.
  • Kröfur varðandi viðkomandi gastegund. Geymsla gastegunda sem eru niðurkældar, fljótandi eða þyngri en andrúmsloft ætti að staðsetja með tilliti til þeirrar hættu sem getur skapast. Gastegundirnar geta safnast saman í t.d. niðurföllum, kjöllurum og göngum.
  • Rafmagnstæki á geymslusvæðinu. Ef gastegundirnar eru eldfimar þurfa raftæki að uppfylla sérstakar reglur. (ATEX 95 reglugerð um búnað 94/9/EC og ATEX 137 reglugerð um vinnusvæði 99/92/EC)

Munið:
  • Geymið aldrei eldfimar gastegundir með öðrum gastegundum.
  • Geymið aldrei aðrar vörur á geymslusvæði hylkja, sérstaklega ekki eldfim efni eins og bensín, olíu, málningu eða ætandi vökva. Það getur valdið hættuástandi.
  • Geymið aldrei própanhylki innan fimm metra frá öðrum gastegundum. Eldveggur minnkar kröfur um fjarlægð.
Storing gas cylinders