Própan er framleitt úr hráolíu. Um það bil 5% bútani er bætt við própanið til þess að auka þrýstinginn í hylkinu til aðlögunar að norrænu veðurfari.
Própan er tilvalinn orkugjafi. Það inniheldur mikla orku og nýtni. Própanlogi myndar ekki sót, gefur ekki frá sér brennistein, þungmálma eða hættulegar gastegundir. Við bestu brunaskilyrði gefur það aðeins frá sér vatn og koldíoxíð.
Própan er mjög sveigjanlegt eldsneyti. Algengast er að það sé nýtt til hitunar, sérstaklega í gler-, stál- og postulínsframleiðslu. Própan er einnig nýtt til bræðslu, herslu, þurrkun og lóðun.
Þar sem própan brennur hreinlega gerir það hentugt eldsneyti á lyftara og aðrar vinnuvélar sem notaðar eru innandyra þar sem það gefur frá sér lítthættulegan útblástur en meiri orku en rafhlöður. Própan er algengt eldsneyti á lyftara og ísskafara (fyrir vetraríþróttir) eins fyrir flutningatækji sem notuð eru innandyra.
Þegar própan er notað í gróðurhúsum myndast bæði hiti og koldíoxíð, sem bæði eru mikilvæg fyrir hraðan vöxt og meiri uppskeru.
Í iðnaði er própan notað í hitaofna, skurð, framleiðslu á keramíki og einnig til að herða steypu.
Í byggingariðnaði er própan aðallega notað til að hita upp rými svo hægt sé að vinna á veturna og einnig í hitun malbiks í vegavinnu.
Própan er mjög varmamyndandi sem gerir það tilvalið fyrir matreiðslu, grill og til hitunar og er einnig notað á veitingastöðum til sömu notkunar. Margir matreiðslumeistarar kjósa gaseldavélar framyfir rafmagnseldavélar.