popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Meðferð própanhylkja

1. Athugið að búnaðurinn sé þéttur
Leki í slöngum og á samtengjum er algengasta orsökin fyrir óhöppum.

2. Lokið hylkinu
Alltaf skal vera lokað fyrir própan hylkið þegar það er ekki í notkun. Þetta tryggir að ekkert gas leki út.

3. Hylkið á að standa upprétt
Própan hylkið er útbúið með öryggisloka sem tryggir að hylkið springur ekki ef það lendir í eldsvoða. Til þess að öryggislokinn vinni eðlilega þarf hylkið ávallt að vera í uppréttri stöðu.

4. Réttur þrýstingur
Til þess að tryggja að ekki verði of mikill þrýstingur inn í búnaðinn sem þú notar þarf að hafa sérstakan þrýstijafnara á hylkinu.

5. Própan er eldsneyti
Própan er mjög eldfimt efni, sem gerir það að verkum að ýtrustu varúðar er þörf. Ekki vera með tilraunir þegar búnaður er tengdur við hylkið. Lesið ávallt leiðbeiningar og fylgið þeim áður en nýr búnaður er tekinn í notkun.

Meðhöndlið própan af öryggi
Ef leki verður:

  • Skrúfið strax fyrir hylkið
  • Varið nálægt fólk við hættunni.
  • Loftræstið. Ekki nota nokkurn rafbúnað sem getur gefið frá sér neista.
  • Bíðið þangað til þið eruð viss um að gasið sem lak út hafi verið ræst út. Ráðfærið ykkur við slökkvilið ef þið eruð í vafa.
  • Finnið uppruna lekans.
  • Lokið fyrir lekann.
  • Gangið úr skugga um að allt sé þétt.