popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Notkun própanhylkja

Þegar öllum leiðbeiningum er fylgt, er própan mjög öruggt til notkunar og er stöðugur og tryggur orkugjafi. Aðal hættan við notkun á própani kemur til ef búnaður er ekki rétt tengdur, lítið eða ekkert viðhald á búnaði eða við notkun á ósamþykktum búnaði. Við notum og útvegum eingöngu búnað sem er fyllilega í samræmi við ströngustu kröfur og er samþykktur af yfirvöldum.

1. Lesið vel leiðbeiningar fyrir notkun

Sjáið til þess að öllum leiðbeiningum sé fylgt við samsetningu sem og notkun á própani. Ef þú ert í vafa hafðu þá samband við söluaðila þess búnaðar sem nota skal. Reynið aldrei að gera við stjórntæki, þrýstijafnara eða gashylki.

2. Geymsla á hylkjum

  • Það er leyfilegt að geyma 25 kg af propani, þ.e. tvö 10 kg hylki í heimahúsi eða bílskúr. Stærsta leyfilega hylkjastærð er 11 kg.
  • Gashylki má aldrei geyma á háalofti, kjallara eða geymslu neðanjarðar. Própan má heldur ekki geyma inni í húsbílum, bátum eða sambærilegum rýmum sem gist er í.
  • Geymið hylkið ávallt í uppréttri stöðu þar sem það verður ekki fyrir miklum utanaðkomandi hita eða þar sem hylkið getur orðið fyrir einhverjum skemmdum frá nálægum hlutum eða tækjum. Própan hylki skulu geymd á læstum stöðum eða þar sem ekki er óhindraður aðgangur utanaðkomandi. Þar sem própan hylki eru geymd skal sjá til þess að nægjanleg loftræsting sé til staðar.
  • Gashylki á aldrei að nota eða geyma undir grillinu, þar sem hitastigið á utanverðu gashylkinu má ekki fara yfir +40°C. Skrúfið ávallt fyrir hylkið að notkun lokinni. Gashylkið á ávallt að geyma í uppréttri stöðu.

3. Staðsetning própanhylkis

  • Própanhylki á alltaf að nota í uppréttri stöðu. Geymið hylkið þar sem það verður ekki fyrir utanaðkomandi hita eða getur orðið fyrir skemmdum frá nálægum búnaði. Eftirfarandi er nauðsynlegt að hafa í huga við staðsetningu og meðferð á própanhylkjum.
  • Ef eldsvoði verður má staðsetning hylkis ekki vera fyrir rýmingarleiðum
  • Hitastig þar sem hylki er staðsett má ekki fara yfir 40°C
  • Staðsetjið hylki minnst 1 m frá ofni, arni, kæliskáp eða annarsstaðar þar sem própan logi er nýttur. Leyfilegt er að minnka þessa fjarlægð í 0,5 m ef sett er upp skilrúm úr eldverjandi efni milli hylkis og logans á notkunarstað.
  • Hylkið skal staðsetja minnst 0,2 m frá ofnum og öðrum hitagjafa.
  • Nægjanleg loftræsting skal vera til staðar þar sem própanhylki eru geymd.
  • Við notkun própans í flytjanlegum búnaði sem og í ferðabílum skal hylkið vera vel fest með þartilgerðum festingum.
  • Própan hylki má aldrei geyma eða nota í gufubaðsklefum.


Leyfilegt er að staðsetja própanhylki inn í eldhúsinnréttingu ef gengið er frá loftræsti opum í innréttingu bæði að ofan og neðan til. Það er mjög mikilvægt að hylkið sé alltaf í uppréttri stöðu. Þrýstijafnari, loki og annar búnaður er hannaður fyrir notkun á gasfasa hylkisins og þess vegna verður hylkið að standa upprétt.

Í bátum þá skal hylkið ávallt staðsett á dekki, í loftræstum skáp/klefa – eða gasþéttru einangruðu rými í vistarverum bátsins með óhindraðri loftræstingu út úr bátnum.

4. Slöngur

Til heimilisnota, skal própanslanga ekki vera lengri en 1,3 m. Mikilvægt er að nota alltaf slöngur sem uppfylla öll skilyrði og staðla. Slöngur fyrir própangas eru appelsínurauðar.

5. Ef þig grunar leka, athugið með sérstökum lekaleitarúða eða sápuvatni

Própan tækjabúnaður er hannaður þannig að lítil hætta er á gasleka. Própan er náttúrulega lyktarlaust, en í framleiðslu er lyktarefni blandað saman við. Það gerir það að verkum að leki uppgötvast mjög fljótt sem minnkar líkur á eldsvoða. Uppruna lekans er auðveldast að finna með sérstökum lekaleitarúða sem úðað er á slöngur og samskeyti. Einnig er hægt að nota upplausn úr sápu og vatni. Ef lekur þá myndast loftbólur. Lokið strax fyrir gashylkið. Ef þrýstijafnarinn lekur, skaltu skrúfa fyrir hylkið og skipta um þrýstijafnara.

Verjið hylkjalokann
Sérstakur tappi skal ávallt vera í gasúttaki þar til hylklið er tengt við einhvern búnað. Ef hylkið er síðan aftengt búnaðinum í lengri tíma skal tappinn settur aftur í gasúttakið til varnar mögulegum leka. Þessi tappi á ávallt að vera í hylkinu við flutning. Munið að loka vel fyrir hylkjalokann.

Eftirlit og viðhald
Athugið allan búnað og aukahluti árlega. Athugið að öll tengi séu þétt með sápuupplausn eða lekaleitarúða (aldrei með logandi eldspýtu). Gasslönguna má athuga með því að brjóta hana saman. Ef þú uppgötvar sprungur þar sem hún er brotin saman, skiptið þá slöngunni strax út fyrir nýja. Viðhald og viðgerðir á gastækjum og búnaði sem og lagnakerfum fyrir própan skal eingöngu vera framkvæmt af fagmönnum.
Inngangur að notkun