Samstarfsaðilar okkar bjóða upp á mikið úrval hágæða persónuhlífa til að tryggja öryggi starfsmanna þinna.
Öryggishjálmar eru nauðsynlegir í umhverfi þar sem hætta er á fallandi hlutum og/eða vélbúnaður hangir í höfuðhæð. Ef fólk vinnur með ákveðin efni og gastegundir sem geta komist í snertingu við andlit þá getur verið þörf á enn frekari persónuhlífum.
Nýtískuleg öryggisgleraugu og grímur eru hönnuð til að vera þægileg og eru gerð úr sterkum, léttum og endingargóðum efnum. Þau eru hönnuð til að verja augun gegn ýmsum hættum, þar á meðal ryki, neistum, sólargeislum, rafsuðublindu, efnaskvettum og flísum.
Ýmsar gerðir af hönskum, bæði úr náttúrulegum- og gerviefnum eru til og verja þeir hendurnar gegn hita, eldi, neistum, oddhvössum hlutum, efnum og hættulegum verkfærum. Sem dæmi um hanska má nefna suðuhanska, hefðbundna leðurhanska, hitaþolna- og efnaþolna hanska.
Hátt og viðvarandi hljóð getur skemmt heyrn og getur valdið tímabundnum eða varanlegum heyrnarskemmdum. Þreytandi suði, höfuðverkjum eða eyrnaverkjum er hægt að komast hjá með notkun eyrnahlífa eða eyrnatappa.