HiQ® stendur fyrir háhreinar gastegundir, nákvæmlega blandaðar gasblöndur, nákvæma þrýstijafnara og úttakspósta, hágæða þjónustu og aðstoð sem veitt
er í margskonar iðnaði sem krefst hreinleika og nákvæmni. HiQ® merkið stendur fyrir nákvæmar lausnir, sértækar þarfir og sérstök skilyrði.
HiQ® inniheldur REDLINE® búnað og BASELINE® þrýstijafnara, ECOCYL® handhæg hylki fyrir sérgös og VERISEQ® gastegundir fyrir lyfjaframleiðslu.
Háhreinar gastegundir og uppsetningar eru nýttar t.d. í rafeindaiðnaði, læknisfræði, á rannsóknarstofum, í umhverfis- og gæðaeftirliti, sem einangrunarefni í rúðum o.fl.
Með HiQ® merkinu skuldbindur móðurfélag ÍSAGA, Linde, að útvega hvar sem er í heiminum gastegundir, búnað, uppsetningar og þjónustu af bestu mögulegum gæðum. Frekari upplýsingar má fá á vef Linde.