AGA vinnur með mörgum af stærstu skipasmíðastöðvum og verktökum heims. Við bjóðum fjölbreytt úrval gastegunda, búnaðar og þjónustu. Einnig bjóðum við lausnir til að einfalda ferla og sameina verk sem leiðir af sér lægri kostnað.
Við bjóðum viðskiptavinum okkar í skipasmíðaiðnaði og brotajárnsiðnaði búnað, þjónustu og lausnir sem þeir þurfa fyrir fjölbreytt verkefni.
Við bjóðum:
- Suða og skurður – allt sem þörf er á í stór suðu og skurðarverkefni.
Í skipasmíðaiðnaðinum er oft unnið í lokuðum rýmum þar sem súrefnisleki er mjög hættulegur. Til að auka öryggi bjóðum við súrefni með íblönduðu lyktarefni, ODOROX®, til þess að lágmarka hættu á slysum vegna súrefnisleka.
- Gastegundir – súrefni, köfnunarefni, loft og argon er afgreitt í þrýstihylkjum eða tönkum og þar að auki þróaðar hlífðargastegundir, ýmist forblandaðar eða blandaðar á staðnum. Brennanlegar gastegundir. Laser gastegundir fyrir skurð, háhreinar gastegundir og blöndur fyrir plasmaskurð.
- Öryggisbúnað, suðutæki og þrýstijafnara.
- Brennslu gastegundir fyrir skurð
- Laser – fjölbreytt úrval laser gastegunda og búnaðar fyrir alla gerðir lasertækni.
- Málmhúðun – acetylene eða propylene í hitaúðu á véla- og málmhlutum.
- Hitameðferð – sérfræðiþekking, gastegundir og búnaður fyrir framleiðendur skipaeininga.
- Birgðaþjónusta okkar, sem byggist á örmerkingu hvers hylkis (ICC), þar sem hægt er að rekja allar aðgerðir og afgreiðslu hylkis. Þetta er sérstaklega hentug fyrir stór svæði t.d. skipasmíðarstöðvar. Kerfið eykur öryggi í allri hylkjameðhöndlun.
Við bjóðum einnig:
- Þjálfun í meðferð gastegunda.
- Þjálfun í suðu, skurði og hitameðferð.