Þegar gas er notað er mjög mikilvægt að dreifikerfið sé í lagi. ÍSAGA býður viðskiptavinum sínum fjölbreytta tækniþjónustu til að tryggja gæði og öryggi dreifikerfis fyrir iðnaðar-, eða háhreinnagastegunda.
Tækniþjónustan getur framkvæmt áhættumat, gert öryggisúttektir og áhættugreiningu. Einnig aðstoðar hún við val á búnaði og hönnun og uppsetningu gasdreifikerfisins.
Við leggjum áherslu á öryggi, bæði í formi forvarna og viðhaldsáætlana og bjóðum upp á öryggisnámskeið fyrir bæði starfsmenn og stjórnendur.
Lausnir okkar uppfylla allar kröfur laga og reglugerða um hvernig gasdreifikerfi skulu uppbyggð og þeim viðhaldið.
Við bjóðum:
- Uppsetningu kerfa samkvæmt lögum og reglugerðum
- Byggingarúttekt
- Framleiðslustýringu
- Þrýstiprófanir, lekaleit og merkingu kerfisins
- CE merkingu, þegar hennar er þörf
- Skjalfestingu og þjálfun um gasdreifingu
Hvort heldur sem það er stækkun núverandi aðstöðu, endurbygging eldri eða algjörlega ný höfum við lausnir, þekkingu og búnað til að tryggja að sett sé upp öruggt, gæða gasdreifikerfi.