Hornsteinn fyrirtækisins AGA er uppfinning sem jók öryggi við meðferð acetylenegass. Öryggi er enn í dag stór þáttur í starfsemi fyrirtækisins. Við vinnum stöðugt að því að auka gæði vara okkar og þjónustu og á meðan hugum við sífellt að öryggi og umhverfisvernd. Öryggi, heilsa, umhverfi og gæði hafa algjöran forgang, 100% af okkar tíma.
Með öryggis-, umhverfis- og gæðastefnu fyrirtækisins höfum við tekið á okkur ábyrgð og skuldbindingar sjálfviljug. Stefnan er óumdeilanleg fosenda fyrir árangri ÍSAGA. Við stundum forvarnir, nálgumst verkefni með varúð og gerum kröfur um ábyrga afstöðu samstarfsaðila okkar.