Fjölbreytt úrval gastegunda
Við flytjum inn og framleiðum gastegundir fyrir nánast allar gerðir iðnaðar og til hvers kyns nota. Sama gastegundin getur verið notuð innan mismunandi atvinnugreina – í iðnaði, matvælum, lyfjaframleiðslu og efnaiðnaði. Gastegundir eða gasblöndur er hægt að afhenda á mismunandi formi og gæðum, hversu mikils magns er óskað, eiginleika sem krafist er og einnig í hvaða fjarlægð afhendingarstaðurinn er.
Vöruúrval okkar samanstendur ekki eingöngu af gastegundum, við getum einnig í gegnum samstarfsaðila okkar boðið upp á vörur til logskurðar og almennrar málmsuðu s.s.þrýstijafnara og suðutæki sem og allan öryggisútbúnað. Við getum útvegað sérhannaðan búnað sem notaður er fyrir fiskeldi og sérstakan búnað til kælingar og frystingar. Gasdreifikerfi af ýmsum gerðum eru einnig mjög mikilvægur hluti af vöruúrvali okkar.
Við bjóðum upp á yfirgripsmikið vöruúrval af gastegundum og tækjabúnaði til notkunar á þeim með það fyrir augum að viðskiptavinur okkar fái heildarlausn þegar hann notar gas frá okkur.
Vörur - Panta
, No.
Panta