Settu öryggið á oddinn- notaðu ODOROX® súrefni með lykt
Súrefni er gastegund í andrúmsloftinu og er okkur lífsnauðsynleg sem og flestum lifandi verum. Mikil hætta er þó alltaf með súrefni sérstaklega ef það er í miklu magni þ.e. yfir 22% í andrúmsloftinu. Þegar súrefnismagn í andrúmslofti stígur eykst hraði bruna og hætta verður á sjálfíkveikju. Ef súrefnismagn eykst frá 21 % sem er venjulegt, upp í 24% tvöfaldast hraði bruna.
Þú sérð ekki súrefnisleka, þú heyrir ekki hvort það leki en þú gætir fundið lykt. Vegna eiginleika súrefnis þá getur ekkert af okkar skynfærum fundið fyrir ofgnótt af súrefni. Þess vegna þarftu að nota ODOROX® súrefni með lykt.
Hvað er það sem lyktar?
ODOROX® inniheldur dímetýl-sulfíð (DMS) sem gefur sterka lykt. Það þarf frekar lítið magn af lyktarefninu til að það finnist lykt sem gefur til kynna gasleka og súrefnis hækkun. Finna þarf hvar leki er. Um 0,1 ppm DMS í lofti er nægilegt til að gefa til kynna súrefnisleka. ODOROX® inniheldur um 12 ppm DMS. Blöndun DMS í súrefnið hefur engin áhrif á suðu eða skurð eða á umhverfið. Við suðu og skurð brennur DMS algjörlega upp í loganum.
ODOROX® á ekki að koma í stað annara öryggisreglna eða viðbragða við notkun súrefnis heldur til viðbótar við þær.
Ef þú finnur lykt:
1. Slökktu á brennaranum og lokaðu fyrir tækin
2. Varaðu alla í rýminu við lekanum
3. Skrúfaðu fyrir lokann á hylki eða úttaki fyrir súrefni
4. Opnaðu dyr og glugga og ræstu út yfirmagn af súrefni
5. Finndu lekann og gerðu við
Hættu við meðhöndlun súrefnis
Notkun súrefnis með brennandi gastegundum krefst ætið varúðar. Þegar súrefnisstyrkur stígur geta efni brunnið sem venjulega eru ekki brennanleg t.d. vinnugallar. Einn af hverjum tíu vinnustöðum verða fyrir óhöppum vegna súrefnis.
ODOROX®, súrefni með lykt, er fyrir skurð, suðu, hitameðhöndlun og aðra tækni á verkstæðum. Vegna lyktarefnisins skal ekki nota ODOROX@ súrefni þar sem það brennur ekki s.s. við matvælavinnslu eða fiskeldi. Ekki skal nota ODOROX® við laser- eða plasmaskurð.
ODOROX® er selt tilbúið á hylkjum eða búntum. Fyrir notendur sem þurfa mikið magn t.d. fljótandi súrefni er hægt að setja lyktarefnið í gaskerfi fyrirtækisins á staðnum.