popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Þurrís

Þurrís er framleiddur úr fljótandi koldíoxíð með því að fella þrýsting og hitastig við stýrðar aðstæður. Þetta breytir fljótandi koldíoxíði í hreinan, hvítan koldíoxíð snjó. Hægt er að þjappa snjónum saman í kubba eða perlur.

Við eina loftþrýstings einingu ( 1 atm = 101 kPa) er hiti þurrís -79°C. Þegar hitastigið eykst breytist þurrísinn beint í gas án þess að breytast í vökva í millitíðinni.

Eiginleikar þurríss:

  • Er bragð- og lyktarlaus
  • Skilur ekki eftir sig leifar, vegna þurrgufunar
  • Er laus við gerla og sýkla
  • Er ekki eitraður
  • Er ekki eldfimur
  • Er auðvelt að meðhöndla þar sem þurrgufa hans er þyngri en andrúmsloft
  • Þarfnast ekki rafmagns þegar hann er nýttur til kælingar
  • Kælir þrisvar sinnum meira en vatnsís
Þurrís er notaður á marga vegu við kælingu á mjólkurvöru, kjöti, frystivöru og öðrum matvælum á meðan á flutningi stendur. Hann er einnig notaður sem kæliefni í ýmsum iðnaðarferlum s.s. mölun á hitaviðkvæmu efni, skreppsamsettningu tengja og undirþrýstings átöppun með kælingu . Þurrísperlur eru notaðar í blásturshreinsun á ýmsum vélum og tækjabúnaði. Einnig er hægt að nota þurrís til að búa til þoku til að ná fram leikrænum áhrifum.

Lesið vandlega öryggisleiðbeiningar áður en þurrís er notaður.


Dry ice