popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Leifturfrysting

Árangursrík kælivarðveisla með sjálfvirkum köfnunarefnisfrystum

Lausnir AGA í cryotækni (cryo=ofurkalt) gera notkun hennar einfaldari. Við höfum búnað til varðveislu margskonar efna og við breitt svið geymsluhitastigs. AGA býður upp á fjölbreyttar lausnir til geymslu lífrænna efna og eina fremstu lofttæmitækni geirans.

Hjá AGA fást köfnunarefnisdjúpfrystar, brúsar fyrir fljótandi köfnunarefni (dewars) og tilheyrandi búnaður. Vegna sérþekkingar okkar getum við boðið upp á og sett upp sérhannaðan búnað (Turn Key) sem nýtir fljótandi köfnunarefni á sem skilvirkastan og hagkvæmastan hátt og þar hámarkar þar með fjárfestingu í geymslum.

Sjálfvirkir köfnunarefnisfrystar

AGA býður upp á vörur frá einum fremsta framleiðanda heims í lofttæmiseinangruðum geymum, Chart-Biomedical. Þar á meðal eru MVE HE gerðir af sjálfvirkum frystum fyrir fljótandi köfnunarefni þar sem hitastiginu -150°eða -190°C er viðhaldið með því að láta fljótandi köfnunarefni streyma í hringrás í neðri hluta búnaðarins. Sýnin eru fryst í gasfasa en ekki dýft í fljótandi fasann.

Búnaðurinn er hannaður til að viðhalda stöðugu hitastigi, hvort sem lífefnin eru geymd í vökva eða gasi. Einn frystir getur rúmað frá 15.600 til 94.500 lífsýnaglös og hægt er að velja um mismunandi stærðir af frystum eftir þörfum viðskiptavinarins.

Frystar fyrir fljótandi köfnunarefnis eru útbúnir með TEC 3000 stjórnkerfi. TEC 3000 er stjórnkerfi sem notar ýmiskonar tækni sem gerir stjórnanda búnaðarins fært að hafa eftirlit með umhverfinu inni í frystinum með ítrustu nákvæmni. Hver frystir getur haft 230 lítra geymslutank með sjálfvirkri stýringu á fljótandi köfnunarefninu. Fyrir stærri frysta er fljótandi köfnunarefni leitt inn um lagnir sem einangraðar eru með lofttæmi frá tanki sem er utanáliggjandi.

Kostir köfnunarefnisfrysta umfram rafmagnsfrysta

Köfnunarefnisfrystar eru áræðanlegir, taka minna pláss, hafa lægri viðhaldskostnað og eru hljóðlátari en sambærilegir rafmagnsfrystar. Einnig frysta þeir við lægra hitastig. Það þýðir meira öryggi og lengri líftíma sýna. Búnaðurinn lekur ekki hita út í umhverfið.


Há-orku HE línan notar 40% minna köfnunarefni en hefðbundinn búnaður með álíka rúmtak. Hver frystir er hannaður til að halda sem mestu lofttæmi á meðan á frystingu stendur. Bygging frystisins gerir mögulegt að geyma sýni í gasfasa. Geymsluhitastigið, -190°C í MVE HE (High Efficiency) tegundunum, er hið lægsta á markaðnum.

Með því að velja fljótandi köfnunarefnisfrysti ertu að tryggja öruggt og lífvænlegt umhverfi, án hávaða og hita sem vélfrystar gefa frá sér út í umhverfið.


Leifturfrysting