popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Fljótandi gas

Súrefni, köfnunarefni og argon eru unnin úr andrúmsloftinu með skiljun. Aðferðina þróaði Carl von Linde fyrir meira en 100 árum síðan. Andrúmsloftinu er þrýst saman og hreinsað af raka, ryki og koldíoxíði. Síðan er það kælt niður í mjög lágt hitastig, þrýst saman í fljótandi form og aðskilið með eimingu í súrefni, köfnunarefni og argon og aðrar eðalgastegundir.
 

Fljótandi gas - Argon Ar

Argon er litlaus, lyktarlaus, bragðlaus og óeitruð gastegund. Notkunarmöguleikar argons byggja í flestum tilvikum á óhvarfgirni þess gegn oxandi áhrifum andrúmslofts. Argon hefur einnig lágt suðumark og leiðir hita illa.

Argon er víða notað sem þekju- eða hlífðargastegund í málmvinnslu, rafsuðu og skurði. Einnig er það notað í gló- og flúorperur.

  • Hitameðferð – sem verndandi hjúpur um hvarfgjörnustu málmana, þar sem köfnunarefni gæti hvarfast eða þurft að útiloka.
  • Óhvarfgirni og skolun – fyrir geymsluílát eða rör í efna- eða lyfjaframleiðslu.
  • Málmhreinsun – fyrir gashreinsun og styrkingu til að ná nákvæmri samsetningu skv. lýsingu.
  • Hálfleiðara notkun – sem verndandi hjúpur fyrir kísilvinnslu í kísilflöguframleiðslu.

Argon hefur mun eðilsþyngra en andrúmsloft, sem gerir það mjög góða hlífðargastegund fyrir:
  • Suðu – hreint eða sem blanda til að hlífa bráðnum málmi frá óhreinkun úr andrúmslofti.
  • Skurð – hreint við mjög hátt hitastig í plasma skurð járn og járnlausra málmblanda.

Argon leiðir hita mjög illa miðað við flestar gastegundir. Þess vegna er það mjög gott til einangrunar, t.d. í tvöföldu gleri.
 

Fljótandi gas - Koldíoxíð

Koldíoxíð er lítillega eitruð, lyktar- og litlaus gastegund með stingandi súru bragði. Það brennur hvorki né er eldnærandi.

Koldíoxíð er hægt að nýta á margan hátt vegna fjölbreyttra eiginleika þess. Algengt er að nota koldíoxíð í matvælaframleiðslu, til kælingar, geymslu eða sýrustigsstjórnunar. Einnig er það notað til að þekja efni, stjórna sýrustigi í vatnsmeðhöndlun, hlífa málmsuðu, auka vöxt jurta og við slökkviefni í eldvörnum.

Koldíoxíð er notað í loftkenndu, fljótandi og föstu formi. Koldíoxíð gufar upp úr föstum fasa við venjulegan loftþrýsting án þess að fara yfir á fljótandi form í millitíðinni. Þurrgufunarhitastigið er -79°C þanni að þurrís, koldíoxíð í föstu formi, mun hafa það hitastig áður en hún gufar upp í gas. Frystikerfi sem byggja á koldíoxíði eru hönnuð til að ná hitastiginu niður að -54°C sem er hentug fyrir geymslu, kælingu og frystingu matvæla.

Koldíoxíð er auðleysanlegt í vatni við hóflegan þrýsting og í olíum og plasti við hækkaðan þrýsting. Koldíoxíð er mikið notað í pakkningar á drykkjarvöru, í kolsýrða drykki og sódavatn.

Í fljótandi formi er koldíoxíð leysiefni fyrir ýmis efni og við yfirþrýsting, háþéttni vökva, eykst leysanleikinn. Lágur raki koldíoxíðs og þurrkunar eiginleikar þess vernda viðkvæm efni.

Fljótandi koldíoxíð verður að þurrís þegar það þenst út við venjulegan loftþrýsting. Þessi eiginleiki er notaður til yfirborðshreinsunar, frosthreinsunar. Litlum þurrísperlum er blásið með þrýstilofti á yfirborð sem hreinsa á af fitu og öðrum óhreinindum. Aðferðin er einnig notuð með ofurhreinu koldíoxíði til að hreinsa linsur, hálfleiðara og LCD skjái.

 

Fljótandi gas - Köfnunarefni

Köfnunarefni er lit-, lyktar- og bragðlaust. Það brennur ekki, er ekki eldnærandi og tekur ekki þátt lífrænum hvörfum. Gastegundin er aðeins léttari en andrúmsloft og leysist aðeins að litlum hluta upp í vatni. Þegar fljótandi köfnunarefni gufar upp (fer úr fljótandi fasa í gasfasa) og hitnar, dregur það í sig umhverfishita og er því tilvalið til kælingar.


Köfnunarefni hefur fjölbreytta notkunarmöguleika. Kælandi eiginleikar fljótandi köfnunarefnis eru nýttir til að frysta matvæli, blóð og önnur efni, breyta eiginleikum málma, stýra hvarfhita, kæla steypu og líkja eftir köldu starfsumhverfi. Köfnunarefni er einnig notað til að hlífa, skola eða hræra ýmis efni eða bráðinn málm. Gastegundina má einnig nýta til að þrýsta saman framleiðsluvöru eða knýja flutningstæki með þrýstingi, um leið og verndar köfnunarefnið tæki og tól gegn raka og súrefni.

 

Fljótandi gas - Súrefni

Súrefni er lit-, lyktar- og bragðlaus gastegund sem veldur bruna og er grundvöllur lífs. Öll frumefni fyrir utan eðalgastegundir, hvarfast við súrefni við ýmis hitastig og mynda oxíð. Súrefni er 1,1 sinnum þyngra en andrúmsloft og er að leysist í vatni að litlu leiti.

Helsta notkun súrefnis tengist eiginleikum þess til að auka bruna, viðhalda lífi og vegna oxunarhvarfa. Hvort sem það er notað beint eða til að auka bruna, er súrefni notað á víðtækan hátt með brennslugasi í bræðsluofnum, málmbræðslu, brennsluofnum, suðu og málmskurði. Súrefni er notað sem hráefni í efnaframleiðslu og til beikingar í pappírsframleiðslu. Mikilvægasta notkunin fer fram á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum til að viðhalda og bjarga lífi.

Bulk gases