Minnkið orkunotkun með því að blása hjólbarða upp með köfnunarefni
Köfnunarefni hefur verið notað um langt skeið til að blása upp hjólbarða fyrir keppnisbíla, flugvélar og þungavinnuvélar en nú er farið að nota köfnunarefni í hjólbarða venjulegra fólksbíla.
Kostir köfnunarefnis framyfir þrýstiloft eru:
- Köfnunarefni er hrein og þurr gastegund í samanburði við þrýstiloft.
- Þrýstingurinn í hjólbarðanum er stöðugri.
- Hægir á þrýstingsmissi.
- Bætir aksturseiginleika.
- Lengir líftíma hjólbarðans.
- Minnkar orkunotkun.
Mörg keppnislið í akstursíþróttum nota köfnunarefni í stað þrýstilofts í hjólbarða vegna þess að köfnunarefnið hefur mun stöðugri þennslu og samdrátt í samanburði við loftið. Oft getur lítill þrýstingsmunur haft mikil áhrif á grip og aksturseiginleika.
Þegar þrýstingur í hjólbarðanum lækkar um 20% frá kjörþrýstingi getur það aukið orkunotkun um 3%. Lækkun þrýstings í hjólbarðanum um 30% styttir endingartíma dekksins um helming. Styttri endingartími er kostnaður fyrir eigandann og umhverfið. Heimild: Däckbranschens informationsråd, däckinfo.nu.
Ábendingar:
- Notkun köfnunarefnis minnkar ekki þörf á því að fylgjast reglulega með þrýstingi hjólbarðans þar sem hættan á leka eða sprungnum hjólbarða minnkar ekki.
- Köfnunarefni kemur ekki í stað viðhalds. Hámarks endingartíma hjólbarða verður aðeins náð ef ökutækinu og hjólbörðunum er vel viðhaldið. Það þýðir að fylgjast þarf með þrýstingi í hjólbörðunum, stilla hjólabúnað og jafnvægisstilla hjólbarðana.
Þegar hjólbarði hefur verið blásinn upp með köfnunarefni skal einungis bæta við köfnunarefni til að viðhalda þrýstingi í hjólbarðanum. Ef bætt er við þrýstilofti hverfa þeir eiginleikar sem hreint köfnunarefni gefur hjólbarðanum.
Köfnunarefni er til hjá fáeinum hjólbarðasölum.