popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

MAPAX® Lausnir

Byggðar á ítarlegum rannsóknum og áralangri reynslu

MAPAX® merkið tengir saman þekkingu á fjölda matvæla, gastegunda og pökkunaraðferða í klæðskerasaumaðar lausnir. Til að tryggja sem bestan árangur ætti að huga að eftirfarandi atriðum:

  • Mismunandi tegundir og magn af örverum sem geta verið til staðar við meðferð og vinnslu varanna
  • Ákjósanlegu hreinlæti
  • Langur framleiðslutími
  • Hitastig
  • Eiginleikar pökkunarefnis, þ.e. gegndræpni
  • Rými fyrir gasmagn í umbúðum
  • Gasblanda
  • Afgangs súrefni

Besta lausnin fyrir þig
Þegar við veitum viðskiptavini MAPAX® lausn, þá gerum við meira en að bara afhenda viðkomandi gastegund.

MAPAX® lausnir eru byggðar á nánu samstarafi á milli framleiðenda pökkunarefnis, pökkunarvéla og gastegunda. Tilgangurinn með þessu samstarfi er að mæta kröfum markaðarins fyrir viðeigandi og hagkvæmar umbúðir fyrir matvæli og á sama tíma að tryggja stöðug og jöfn vörugæði á meðan þær fara í gegnum alla dreifingarkeðjuna og enda sem uppstillt, aðlaðandi vara í kæliborði verslunarinnar.

Við vinnum náið með matvælarannsóknastofnunum í mörgum löndum, t.d. SIK (Svíþjóð), VTT (Finnland), Campden (Bretland), og eigum fjölda matvælaframleiðenda sem viðskiptavini um allan heim. Náið samstarf við matvælaiðnaðinn hefur hjálpað okkur að velja bestu gastegundir fyrir hverja matvælategund.

Geymsluþol vara án og með MAPAX® lausnum:

Meðalgeymsluþol matvæla í lofti Meðalgeymsluþol matvæla með MAPAX® lausn
Hrátt rautt kjöt2 - 4 dagar5 - 8 dagar
Hrátt hvítt alifuglakjöt4 - 7 dagar16 - 21 dagar
Hrátt rautt alifuglakjöt3 - 5 dagar7 - 14 dagar
Pylsur2 - 4 dagar2 - 5 vikur
Sneitt soðið kjöt2 - 4 dagar2 - 5 vikur
Hrár fiskur2 - 3 dagar5 - 9 dagar
Eldaður fiskur2 - 4 dagar3 - 4 vikur
Harður ostur2 - 3 vikur4 - 10 vikur
Mjúkur ostur4 - 14 dagar1 - 3 vikur
Kökur Nokkrar vikurAllt að 1 ár
BrauðNokkrir dagar2 vikur
Forbakað brauð5 dagar20 dagar
Fersk salatblanda2 - 5 dagar5 - 10 dagar
Ferskt pasta1 - 2 vikur3 - 4 vikur
Pizza7 - 10 dagar2 - 4 vikur
Deig (pæ)3 - 5 dagar2 - 3 vikur
Samlokur2 - 3 dagar7 - 10 dagar
Tilbúnar máltíðir2 - 5 dagar7 - 20 dagar
Þurrvara4 - 8 mánuðir1 - 2 ár

Andrúmsloft

Loftskiptar umbúðir

MAPAX® Solutions