popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Loftskiptar umbúðir (MAP)

Með nútíma- og umhverfisvænni gastækni er hægt að breyta samsetningu andrúmslofts í umbúðum matvæla og lengja þannig geymsluþol þeirra. Með því að breyta samsetningu andrúmsloftsins í koldíoxíð eða blöndu af koldíoxíð og köfnunarefni er hægt að verja matvælin fyrir áhrifum súrefnisins í andrúmsloftinu og komast þannig hjá að nota rotvarnarefni. Aukið geymsluþol eykur framlegð bæði framleiðenda, heildsala og stórmarkaða.

AGA hefur tekið saman þekkingu sem við höfum aflað okkur á matvælum, lofttegundum og pökkun undir merkinu MAPAX® (pökkun í loftskiptar umbúðir). MAPAX® hefur eftirfarandi kosti:

  • Salan eykst með því að fullnægja vaxandi eftirspurn frá neytendum fyrir náttúrulega rotvarin matvæli án þess að notuð séu aukaefni eða önnur rotvarnarefni.
  • Geymsluþol eykst um daga og jafnvel vikur, sem eykur framboð af ferskum matvælum til neytenda.
  • Minnkar magn skemmdrar vöru sem er skilað.
  • Eykur framleiðsluhagkvæmni og gerir dreifinguna auðveldari og kostnaður lækkar.
  • Eykur sölu með því að gera það mögulegt að bjóða nýjar vörur á nýjum markaði.
Modified Atmosphere Packaging