popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Gastegundir eru hluti af daglegu lífi

Gastegundir eru notaðar dags daglega, en við hugsum sjaldan um það. Metan sem eldsneyti á bíla verður algengara. Sum bílaverkstæði bjóða upp á köfnunarefni fyrir hjólbarða.

Við notum própan til hitunar, eldunar, fyrir grillið, í kælingu og jafnvel til að eyða arfa eða til að hita upp út á sólpalli á síðkvöldi. Kannski ertu með kolsýrt drykkjarvatn úr krananum eða gosvél í eldhúsinu.

Í veislum og gleðskap er hægt að nota þurrís til að kæla mat eða til að gera skemmtilega drykki. Einnig hafa flest börn gaman af blöðrum og við seljum helíum sem notað er til að blása upp blöðrur.

Með því að nota gastegundir er hægt að spara tíma, gera lífið auðveldara og skemmtilegra.


Leisure