Í laser breytist raforkan í ljósboga í resonatornum með hjálp háhreinna gasategunda. Við Laser-suðu og skurð eru notaðar háhreinar gastegundir sem bæta gæði framleiðslunnar og auka framleiðsluhraða. Lasertæknin krefst háhreinna gastegunda og gaskerfis í samræmi við þær þar sem minnstu óhreinindi geta rýrt gæði framleiðslunnar og framleiðsluöryggi.
Gasblöndur fyrir koldíoxíð-laser innihalda 60-85% helíum, 13-55% köfnunarefni og 1-9% koldíoxíðs. Samsetning blöndunnar tekur mið af gerð lasersins og kröfum framleiðanda. Fyrir sumar tegundir lasertækja þarf að hafa til viðbótar aðrar gastegundir eins og súrefni, vetni, xenon og kolmónoxíð. Þegar um eitraðar gastegundir eins og kolmónoxíð er að ræða, þarf að byggja kerfið kringum laserinn með sérstökum hætti.
Gasblöndur fyrir excimerlasera innihalda oft 0,05-0,3% halogena (fluor eða klórvetni), 1-10% eðalgastegundir (krypton, xenon eða argon) og 90-99% stofn (helíum eða neon). Til öryggis eru halogenablöndur yfirleitt blandaðar með helíum eða neoni.
Hreinleiki lasergasa
Fyrir nýrri tegundir koldíoxíð-lasera þarf að nota háhreinar gastegundir. Óhreinindi eða snefilefni í lasergösum minnka getu tækisins m.a. með því að hægja á framleiðslu og trufla ljósboga myndunina ásamt því að linsan slitnar. Skaðlegustu efnin í þessu samhengi eru raki og kolvetni.
Óhreinindin í lasergösunum eru yfirleitt ekki úr gashylkjunum heldur koma óhreinindin frá gaslögnum og gasskiptistöðvum. Því er nauðsynlegt að sérfræðingar setji upp gaskerfið og valið á gastegundum sé gert af þekkingu.
Lasergasblöndun
Lasergas fyrir koldíoxíð-lasera er afhent í þar til gerðum hylkjum og blandast í lasernum með blandara eða að lasergasið er blandað fyrirfram í hylkið, Lasermix.