Óvirkar gastegundir - Uppgötvun súrefnisgnægðar eða skorts
Þegar unnið er á svæðum þar sem magn súrefnis í andrúmsloftinu getur breyst þannig að hættulegt verði, þarf stöðugt að fylgjast með magninu.
Til eru mælitæki sem sýna aukningu eða minnkun súrefnis í andrúmslofti. Í lokuðum rýmum ættu tækin að vera staðsett eins nálægt starfsmanninum og mögulegt er og mælt er með að starfsmaðurinn hafi færanleg mælitæki fest við vinnufatnað.
Mælingar gerðar með hléum, ætti aðeins að nota ef tíminn milli tveggja mælinga er nógu stuttur þannig að hægt sé að finna breytingar tímanlega.
Aðrar gastegundir
Öryggi rýmis er ekki háð súrefnismagni einungis, heldur geta aðrar gastegundir haft áhrif, s.s. brennanlegar gastegundir og köfnunarefni þegar notuð eru skurðar- eða suðutæki. Það þarf einnig að fylgjast með þessum tegundum.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
- Tæki sem notuð eru til framleiðslu, dreifingar og notkunar óvirkra gastegunda verður að setja upp og auðkenna í samræmi við ráðleggingar iðnaðargasgeirans, og verður að fylgja þeim reglum sem eiga við.
- Bregðast verður við öllum lekum af fagfólki sem hefur næga þekkingu og búnað til þess.
- Gefa þarf upplýsingar til starfsmanna og viðbragðsaðila um hvernig skuli bregðast við eigi slík atvik sér stað.
- Starfsmenn þurfa að fara eftir verklagsreglum og nota persónuhlífar þar sem við á.
- Allir sem vinna í rýmum þar sem súrefnisskortur eða –ofgnægð getur átt sér stað þurfa að fá viðeigandi fræðslu um þær hættur sem eru fyrir hendi og þá sérstaklega hversu lævís hættan er, vegna þess hve hratt hún hefur áhrif og einnig vegna þess að starfsmaðurinn gerir sér ekki grein fyrir hættunni.