Iðnaðargastegundir eru notaðar um allan heim, á hverri klukkustund dag hvern – í suðu, frystingu, hitun, efnagreiningu, kælingu eða til prófana. Við erum ekki að ýkja þegar við segjum að tæknilausnir ÍSAGA fyrir gastegundir snerta daglega lífi okkar allra.
Gastegundir frá ÍSAGA eru notaðar í ýmsum sérhæfðum verkum á mörgum sviðum. Þessar gastegundir geta aukið lífsgæði með því að bæta umhverfi okkar, öryggi og heilsu. Gastegundir geta einnig bætt frammistöðu fyrirtækja með því að gera framleiðslu þeirra arðbærari og hækka gæðastigið.
Við bjóðum sérþekkingu til að hámarka mikilvægustu ferla viðskiptavina okkar, bæta notkun og straumlínulaga ferla. Þar sem ÍSAGA er í eigu Linde Group getum við útvegað verksmiðjur, rannsóknarstofur og annan búnað ásamt því að deila sérþekkingu um allan heim.
Við höfum reynslu af að vinna í samstarfi við fyrirtæki á ýmsum sviðum og með margs konar framleiðsluaðferðir. Þessi reynsla byggist upp og við erum oft fær um að umbreyta lausn úr einum geira yfir í sérsniðna lausn fyrir annan.
Veldu atvinnugrein til að sjá dæmi um þá þekkingu og lausnir sem við getum boðið þínu fyrirtæki.