popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Handnemar fyrir gas

G-TECTA® handnemar fyrir gas eru auðveldir í notkun með einfaldri eins takka stýringu. Nemana er auðvelt að prófa og kvarða reglulega af notanda. Nemarnir eru áberandi með björtu, rauðu, síblikkandi ljósi sem tryggir að sá sem ber nemann á auðvelt með að sjá merkið og það tryggir öryggi alls staðar í fyrirtækinu.

G-TECTA® handnemar fyrir eina gastegund eru fyrirferðarlitlir og auðveldir í notkun. Þrátt fyrir smæð tryggja þeir öryggi þitt og eru mjög þægilegir í meðförum.

G-TECTA® handnemar fyrir margar gastegundir eru með skjá á framhliðinni sem sýnir hættumerkin og auðvelt er að fylgjast með gasmagni við erfiðar aðstæður.

G-TECTA® viðvörunartæknin tryggir öruggan gasaflestur og tafarlausa viðvörun ef eitthvað er að nemanum.

Allir nemarnir eru vottaðir skv. alþjóðlegum stöðlum og henta til notkunar hvort sem er á svæðum með sprengihættu eða á áhættulitlum svæðum.

G-TECTA® gasviðvörunarkerfi ásamt gasi frá AGA er val hinna vandlátu með öryggi og þjónustu í fyrirrúmi.
Handnemar fyrir gas