Matvælaframleiðsla
Neytendur krefjast úrvals matvæla sem uppfylla kröfur um gæði. Við vinnum með matvæla- og drykkjarframleiðslufyrirtækjum um allan heim til að uppfylla þörf þeirra fyrir gastegundir og lausnir sem bæta gæði vörunnar, minnka framleiðslukostnað og gera þau samkeppnishæfari.
Við bjóðum tæknilega ráðgjöf og nýjar lausnir við vinnslu og pökkun á bökunar- og mjólkurvörum, kjöti, sjávarafurðum, ávöxtum, grænmeti og tilbúnum réttum.
Við bjóðum:
Undirbúning fyrir vinnslu – umbreyting fljótandi fitu í duft með gasfrystingu fyrir hráefni til baksturs, mjólkurdufts- og konfektgerðar.
Hræra, blanda, rúlla og færa til:
- til að hraðkæla á meðan blöndun fer fram og tryggja þekkt hitastig í hverri framleiðslulotu.
- Snjóhorn – fyrir nákvæma og háafkasta vinnslu viðkvæmra matvæla.
- Koldíoxíð- og köfnunarefniskæld lofttæmingarkerfi – til að stytta vinnslutíma og bæta vörugæði.
Stýrt andrúmsloft til lömunar við slátrun.
Frysting og kæling – vörur og lausnir fyrir matvæli, vinnslustöðvar og flutning, þ.á.m:
- Gastegundir – fljótandi köfnunarefni og koldíoxíð fyrir frystingu.
- Kæliefni – fjölbreytt úrval umverfisvænra og hefðbundinna kæliefna í frystikerfi.
- Búnaður – frystar, kælar, hitastýringarkerfi og annar tækjabúnaður.
Pökkun / Heildarlausnir í pökkun matvæla, þ.á.m:
- Gastegundir – fljótandi og háþrýst köfnunarefni, koldíoxíð, súrefni og blöndur fyrir loftskiptar umbúðir.
- Gastegundir og –blöndur til pökkunar, þurrkunar, dauðhreinsunar og meindýravarna.
- Gastegundir og búnaður fyrir lasermerkingu síðasta söludags á málmumbúðir.
Við bjóðum einnig fyrir framleiðslufyrirtæki:
- Suðugastegundir og búnað.
- Súrefni fyrir vatnsmeðferð.
- Viðmiðunargas – sérblöndur og háhreinar gastegundir.
Drykkjaframleiðsla
Bjór, gosdrykkir og kolsýrt vatn hafa auðgað líf okkar í mörg ár og gastækni hefur gegnt lykilhlutverki í þróun þeirra og framleiðslu. Drykkjaiðnaðurinn nýtir gastegundir á margskonar hátt – þú munt sjá að gas hefur haft áhrif allsstaðar, frá stórum átöppunarverksmiðjum þar sem drykkir eru framleiddir, til veitinga- og skemmtistaða þar sem drykkjanna er neytt.
Við bjóðum fyrir:
- Drykkjaumbúðir – fljótandi gastegundir og pökkunarkerfi.
- Gosvélar – háþrýstar og fljótandi gastegundir, búnað og lausnir.
Við bjóðum einnig:
- Gastegundir og búnað fyrir lasermerkingu “best fyrir” dagsetningu á málmumbúðir.