popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Búnaður

Það er mjög mikilvægt að fylgjast með gasdreifikerfum þar sem lekar geta orðið allsstaðar í kerfinu, sérstaklega við tengingar. Gasbúnaður og úttaksstöðvar aðstoða við að geyma gastegundir rétt, stýra flæði þess og þrýstingi og koma í veg fyrir stórslys vegna gasleka. Við hjá ÍSAGA og samstarfsaðilar okkar bjóða upp á fjölbreytt úrval gasbúnaðar, svo sem úttök, þrýstijafnara og loka sem uppfylla allar kröfur um öryggi.
 

Búnaður - Lekaprófun

NOTIÐ ALDREI LOGA ÞEGAR GASLEKA ER LEITAÐ!

Það er mjög mikilvægt að allur búnaður sem tengist gasdreifikerfi sé skoðaður og lekaleitaður eftir uppsetningu og lagfæringar gerðar sé þess þörf áður en búnaður er tekinn í notkun.

Notið ávallt búnað sem ætlaður er til lekaleitar. Lekaleitarúði AGA (TL-4) er tilvalinn fyrir iðnaðarkerfi. Notið ekki sápuvatn eða uppþvottalög. Gangið úr skugga um að lekaleitarbúnaðurinn henti fyrir þau efni sem notuð eru í kerfinu. Lekaleit á að framkvæma við öll samtengi.

Lekaleitið allar samtengingar eða staði þar sem leki getur orðið, svo sem við tengingu loka við þrýstijafnarann.
Það á aldrei að setja lekaleitarefni inn í hylkjaloka. Ef froðumyndun á sér stað skal taka þrýstinginn strax af kerfinu, yfirfara útbúnað og útiloka leka. Notið ekki búnaðinn fyrr en lekinn hefur verið lagaður. Þurrkið tæki og búnað með þurrum klút eftir að lekaleit hefur farið fram. Þegar lekinn hefur verið stöðvaður, skolið þá allt loft af kerfinu áður en notkun hefst að nýju.

Leitið reglulega að göllum og leka

  • Slöngur sem leka, eru sprungnar, með brunablettum eða yfirborðsskemmdum skal skipta út með nýjum slöngum sem ætlaðar eru fyrir viðkomandi gastegund og notkun.
  • Skoðið suðu- eða skurðartækin reglulega. Ef þau stíflast eða eru við það að stíflast, hreinsið þau eða endurnýið.
  • Haldið búnaði hreinum. Sérstaklega á þetta við um þrýstijafnara fyrir súrefni, þá skal geyma á hreinum stað þegar þeir eru ekki í notkun. Ef þrýstijafnari virkar ekki sem skyldi, endurnýið hann strax.

Leki þar sem loki gengur niður í hylki
Leki milli hylkis og loka gefur frá sér blístur/hvæs og lyktar ef um brennanlegar gastegundir er að ræða. Notið ekki hylkið og reynið ekki að lagfæra lekann. Flytjið hylkið á svæði þar sem lekinn dreifist á öruggann hátt, merkið það og látið okkur vita. ATH! Ef þrýstijafnarinn er bilaður er hægt að fá nýjan hjá okkur og samstarfsaðilum okkar.

Þegar um þrýstijafnara með þrýstimælum er að ræða, skal ekki taka þrýstimælana af, skipta um eða fikta við þá. Ef þrýstimælir lekur, takið þá allan þrýstijafnarann af og farið með hann til birgja og fáið ráðleggingar.
 

Búnaður - Ráðleggingar um búnað

Slöngur

Notið aðeins slöngur eða barka sem uppfylla Evrópustaðla. Notið aðeins hágæða slöngur eins og þær sem AGA býður upp á. Lakari slöngur harðna og geta myndast sprungur og þær leka eða það getur jafnvel kviknað í þeim að innan ef súrefni fer um þær. Notið aldrei vatnsslöngur.

Tryggið að slöngur séu af réttri lengd og ekki lengri en nauðsyn krefur. Þær þurfa þó að vera nógu langar til að hylkin geti verið staðsett fjarri fljúgandi neistum og heitum málmi. Vefjið ekki umfram slöngu utan um hylkið, þrýstijafnarann eða á gólfið nálægt hylkinu. Það er mjög erfitt að slökkva eld í vafinni slöngu. Umfram slöngu er best að geyma fyrir aftan suðumanninn svo neistar berist ekki í hana. Slöngur á ekki að leggja undir skurðar- eða suðusvæðið.

Rétt tengi
Léleg tengi á slöngu valda oft slysum. Slöngur frá AGA eru búnar tengjum föstum nipplum og róm sem ganga upp á hefðbundin úttök þrýstijafnar og handtök á brennurum. Við bjóðum einnig upp á hefðbundnar slöngur með slönguklemmum.

Notið aldrei gamlar eða notaðar klemmur á slöngutengi. Undinn vír getur valdið miklum skaða ef slangan losnar eða hreyfist. Skoðið tengi reglulega. Munið að hreinsa slöngur áður en kveikt er á skurðar- eða suðutækjum.

Athugið þrýstijafnara og bakslagsloka
Þegar búnaður sem notar súrefnisblöndu er notaður, er hætta á bakslagi þegar rangur þrýstingur er notaður eða ekki er farið eftir verklagsreglum. Stíflur, bilaður búnaður og lekur búnaður getur einnig valdið bakslagi. Ein aðal ástæða bakslags er þegar háþrýstu gasi er hleypt á lágþrýstara gas.

Notkun einstefnuloka kemur í veg fyrir að súrefni og brennslugas blandist í slöngunni og í því kvikni. Bakslagseldur getur valdið slysum og skemmdum.

Bakslagsloki stöðvar bakslagseld í að komast inn í hylkið eða gasdreifikerfið. Hann inniheldur ventil sem lokar fyrir gasstreymið. Bakslagslokar auka öryggi, sérstaklega á stöðum þar sem eldur af völdum bakslags reynist einstaklega hættulegur t.d. á spítölum, bílskúrum og á vinnustöðum þar sem eldfim eða hættuleg efni eru geymd. Allur búnaður sem notaður er fyrir súrefni verður að vera samþykktur fyrir slík not. Bakslagsloka ætti að setja á allar slöngur fyrir brennslugas og einnig á súrefnisslöngur þegar súrefni er notað með brennslugasi.

Notið réttan fatnað og persónuhlífar
Notið öryggisgleraugu með tvöfaldri linsu (sem er CE merkt), þegar soðið eða skorið. Innri linsan skal vera lituð en sú ytri glær. Skipta skal um ytri linsuna reglulega þegar hrím safnast upp. Það er einnig ráðlegt að nota augnhlífar (gleraugu eða öryggisgleraugu með CE merkingu) þegar háþrýstar gastegundir eru meðhöndlaðar til að vernda augun gegn rykögnum eða þrýstingi frá gasinu. Klæðist ekki fatnaði úr eldfimum efnum. Leðurhanska skal nota þegar nauðsyn krefur og á sumum vinnusvæðum getur verið þörf á frekari persónuhlífum.

Búnaður