Öll hylki ÍSAGA eru litamerkt í samræmi við Evrópustaðal EN1089-3 sem gerir okkur kleift að þekkja gashylki úr mikilli fjarlægð. (Samantekt um einkenni hylkjanna í algengri notkun er hér að neðan)
Notendur gastegunda ættu alltaf að hafa öryggisleiðbeiningar fyrir hverja þeirra þar sem hægt er að nálgast þær á auðveldan hátt. Innihald hylkis er hægt að þekkja á merkimiða eða hálsi hylkisins. Merkimiðinn gefur einnig upplýsingar um mikilvæg öryggisatriði. Myndin hér að neðan útskýrir merkimiða hylkisins.
- Vörunafn
- Eiginleikar vörunnar
- Viðvaranir
- Gaskódi
- Flutningsleiðbeiningar
- Öryggisleiðbeiningar