popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Við grillið

Gasgrillið verður æ vinsælla, en á sumrin er grillið oft staðurinn sem við söfnumst saman við þegar matartími nálgast. Margir hafa uppgötvað hversu einfalt það er að grilla og hversu auðveldlega og fljótt er að breyta hitanum í gasgrilli, hvort sem er að hækka eða lækka hitann.

Grillmat er einfalt að tilreiða, bragðmikinn og þægilegan. Með ímyndunaraflinu getur þú komið fjölskyldunni og vinum á óvart með fjölbreyttum og framandi réttum.

Þú getur grillað lambasteikur, fisk heilan eða flakaðann og að sjálfsögðu pylsur og hamborgara. Þú getur til dæmis sneitt niður grænmeti og kryddjurtir, sett í álpappír með olíu eða smjöri og sett á grillið til hliðar við kjötið. Hefur þú einhverntíma prófað að grilla risarækju í álpappír með hvítlauk og kryddjurtum?

AGA gas við grillið – Kostir gasgrillsins eru margir

  • Grillið er tilbúið á augabragði
  • Bragðgæði matarins eru varðveitt
  • Fullkomna stjórn á hitanum
  • Minni reykur en við kolagrill
  • Auðveldara að þrífa

Þú nærð bestum árangri með því að hafa lokið niðri þegar þú grillar steikur og stærri kjötstykki. Lækkaðu hitann þannig að kjötið grillist við vægan hita, sem gerið það ennþá safaríkara.


Grillaðu þegar þig langar til – með própani þarft þú ekki að bíða eftir “hinu fullkomna veðri” og þú losnar við reykinn. Þar sem það er svo auðvelt að þrífa gasgrillið eru margir sem grilla mun oftar en áður og jafnvel allt árið.

Ef þér finnst gaman að grilla kemur þú til með að grilla mun oftar með gasgrilli. Trefjaplast hylkið fyrir própan er mjög auðvelt í notkun. Það vegur lítið og þú getur alltaf séð hversu mikið gas er eftir í hylkinu þar sem það er gagnsætt. Trefjaplast hylki er nýstárleg, einföld og snjöll hönnun sem gerir það að verkum að hægt er að nota það nánast hvar sem er.

Mundu eftir própaninu áður en þú byrjar að grilla.
AGA gas frá okkur er til sölu víða um land.