popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Helíumblöðrur

Helíum er til marga hluta nytsamlegt t.d. í suðu, köfun, á rannsóknarstofum og að sjálfsögðu í blöðrur! Blöðrur eru fáanlegar í nánast öllum gerðum og stærðum.

Að kaupa helíum hjá okkur er mjög einfalt og umboðsaðilar okkar eru um allt land.

Þegar þú kemur til okkar eða umboðsaðila okkar til að kaupa gas er hylkið skráð á þína kennitölu (eða viðkomandi fyrirtækis) í nokkra daga. Þegar hylkið er orðið tómt, skilar þú því aftur til okkar eða til umboðsaðilans.

Þegar hylkinu hefur verið skilað er gefinn út reikningur þar sem innheimt er hylkjaleiga fyrir þá daga sem hylkið var hjá þér.

Ef þú óskar þess að við eða umboðsaðili okkar sendi þér hylkið og sæki það aftur þegar notkun er lokið, geturðu pantað það símleiðis. Í þeim tilfellum innheimtum við flutningskostnað.

Vinsamlegast athugið að ef nota á helíumið í blöðrur þarf sérstakan blöðrustút. Hann er hægt að fá hjá okkur ef þú átt hann ekki nú þegar.



ATH: Yfirfylling á blöðru stóreykur Helíum notkun!
Ef þú t.d. fyllir 23cm blöðru þar til hún nær 28cm stærð þá hefur þú eytt tvöfalt meira helíum en gert er ráð fyrir.


balloons