Ljósbogasuður eru skilgreindar sem MIG/MAG, TIG og plasma suða. Orkan sem notuð er í suðuaðferðirnar kemur frá ljósboga sem myndast.
MIG/MAG suða er algengasta suðuaðferðin, sérstaklega í evrópskum framleiðsluiðnaði, aðallega vegna mikilla afkasta og gæða suðunnar.
TIG suða er mikið notuð í framleiðsluiðnaði, við viðgerðir og samsetningar. Hún hentar sérstaklega vel þar sem efnið er mjög þunnt og íhlutir litlir auk þess sem hægt er að nota hana á flestar gerðir málms.
Plasma suða byggir á sömu forsendum og TIG suða, nema ljósboginn hefur mun sterkari orkuþéttni. Þess vegna hentar hún vel þegar sjóða á þykkari efni, eins og háblandað stál og járnlausa málma. Einnig hefur náðst góður árangur með þunn efni og málma, þar sem einnig er hægt að ná lítilli orkuþéttni ljósbogans (micro – plasma).
Helsti tilgangur hlífðargastegunda við ljósbogasuðu er að vernda rafskautið (ásamt bráðnum og heitum málmi) gegn óæskilegum áhrifum andrúmsloftsins sem umlykur suðuna. Einnig myndar hlífðargasið kjöraðstæður fyrir ljósbogann. Í sumum tilfellum getur einnig verið þörf á að vernda suðunna frá rótarhlið.
Við vinnu með mikinn hita skal fylgja öllum öryggisleiðbeiningum til að forðast eldhættu og sprengingar.