ÍSAGA var stofnað árið 1919 til að framleiða acetylengas fyrir vita landsins. AGA var fremst í þróun í ljóstækni fyrir vita. Af þeim sökum var AGA valið sem samstarfsaðili og hluthafi við stofnun fyrirtækisins. Fyrsti vitinn hafði verið reistur hér árið 1878 og fyrstu AGA vitarnir hérlendis voru reistir árið 1909. Fyrst á Öndverðarnesi og Reykjanesi og seinna sama ár á Langanesi. Árið 1910 var reistur viti í Dyrhólaey sem var nokkuð stærri og lýsti 16 sjómílur. Vitinn á Rifstanga (1911) var fyrsti vitinn með sólarloka. Gustaf Dalén, stofnandi AGA, fékk árið 1912 Nóbelsverðlaun í efnafræði fyrir “uppfinninguna á sjálfvirkri stjórnun á vitum og baujum með gassafnandi hylkjum”. Það vildi svo til að hann gat ekki tekið við verðlaununum þar sem hann lá helsjúkur eftir sprengingu þegar hann var að gera tilraun með acetylenmassa.
Lengst af var hlutabréfaeign AGA í ÍSAGA breytileg en 1991 eignaðist AGA meirihluta í félaginu eftir að hlutabréf í ÍSAGA voru boðin til sölu á alþjóðlegum markaði. Árið 1999 var AGA keypt af Linde frá Þýskalandi. Linde keypti seinna gasfyrirtækið BOC frá Bretlandi. Linde Group er stærsta gasfyrirtæki heims með starfsemi í yfir 100 löndum og 55 þúsund starfsmenn. Carl von Linde stofnandi Linde, fann árið1902 upp aðferð til að skilja andrúmsloft í frumefni sín. Sjö árum áður hafði hann fundið upp aðferð til að fá loft yfir á fljótandi form. Hann fékk einkaleyfi fyrir þá aðferð.
ÍSAGA ehf hefur aðsetur að Breiðhöfða í Reykjavík. Þar eru súrefnis- og köfnunarefnis verksmiðja fyrirtækisins, áfyllingastöð, skrifstofa, verslun o.fl. Þess utan er ÍSAGA ehf með 5 afgreiðslustaði víðsvegar um landið. Hjá fyrirtækinu starfa um 28 manns.
Verksmiðjan (ASU) í Reykjavík vinnur 800 m3/klst af súrefni og köfnunarefni. Að Hæðarenda í Grímsnesi er koldíoxíðframleiðsla. Þar er koldíoxíð unnið úr jarðhitavatni. Aðrar lofttegundir sem ÍSAGA ehf selur, eru innfluttar eins og t.d. glaðloft, argon, helíum, acetylen og própan.
Lofttegundir eru fluttar og geymdar í tönkum, baukum, hylkjabúntum og stökum þrýstihylkjum. Lofttegundirnar eru ýmist fljótandi, uppleystar í vökva eða samanþjappaðar undir þrýstingi. Áætlað er að hérlendis séu í umferð um það bil 55.000 þrýstihylki. Til viðbótar eru í umferð nokkur þúsund própanhylki, sem notuð eru bæði í iðnaði og á heimilum. Öll áfylling á hylki og hylkjabúnt fer fram í Reykjavík. Í vaxandi mæli tíðkast að settir séu upp stórir tankar hjá viðskiptavinum sem nota lofttegundir stöðugt og í miklu mæli. Tankbílar sjá svo um að fylla á þessa tanka.