Hlífðargastegundir hafa fyrst og fremst verið þróuð til að vernda suðuna. Þróun hlífðargastegunda og hámörkun afkasta suðuaðferða hefur því miður haft þær afleiðingar að það hefur myndast aukið magn ósons við suðu með hlífðargasi.
AGA hefur þróað MISON® hlífðargös sem halda ósonmyndun í lágmarki en viðhalda hámarks afköstum. MISON® er samheiti á hlífðargastegundum sem bæta vinnuumhverfið og tryggja hámarks árangur hvers suðuverkefnis. Með MISON® hlífðargastegundum getur þú náð mjög góðum afköstum og suðugæðum.
Hvers vegna er svo miklvægt að eyða ósoni ?
Óson er mjög tærandi (oxandi) gas. Samkvæmt EEA (European Environmental Agency), umhverfisstofnun innan Evrópusambandsins er óson heilsuspillandi. Að verða fyrir skammtíma óson mengun veldur meðal annars ertingu í augum og hálsi, hósta, bólgum í lungum og öndunarerfiðleikum.
Samkvæmt EEA, nær líkaminn sér fljótt af mikilli ósonmengun, en síendurtekin mengun getur valdið varanlegum skaða á lungnavefjum. Hættumörk (hæsti ásættanlegi styrkleiki efnisins í andrúmslofti á meðan á vinnudegi stendur) eru svo lág að það nær aðeins 0,1 ppm eða 0,00001%. Jafnvel styrkleiki undir þessum mörkum getur valdið einkennum hjá viðkvæmum einstaklingum eins og asmaveikum.
Hvernig vinnur MISON® ?
MISON® hlífðargastegundir innihalda vandlega skilgreint magn af köfnunarefnismónoxíðs sem vinnur gegn ósonmyndun á árangursríkan hátt, með því að mynda súrefni og köfnunarefnisdíoxíð. MISON® ræðst að rótum vandans þ.e. ósonið hverfur um leið og það myndast. Meira en 20 ára reynsla hefur sýnt að vinnuumhverfi suðumannsins er verulega bætt með árangursríkri minnkun ósons í andrúmsloftinu. Rannsóknir óháðra aðila hafa sýnt fram á að MISON® dregur úr ósonmengun í andrúmslotinu á árangursríkan hátt.
MISON® hlífðargastegundir eru dæmi um hvernig hægt er að bæta vinnuumhverfið án þess fórna afköstum eða suðugæðum. Bætt vinnuumhverfi getur einnig leitt til aukinnar framleiðni vegna færri fjarvista frá vinnu vegna veikinda eða slysa.
Rétt hlífðargastegund fyrir allar gerðir suðu
MISON® hlífðargastegundir eru til í mismunandi gerðum fyrir mismunandi verkefni. Hlífðargastegundum fyrir suðu er skipt í mismunandi hópa eftir eiginleikum þess í samræmi við EN ISO 14175.
MISON® hlífðargastegundir eru þróuð og víðtæk lausn sem gefur mikla möguleika, en einnig eru til aðrar gerðir hlífðargastegunda fyrir ljósbogasuður sem hafa í vissum tilfellum óviðjafnanlega kosti.

MISON® 8
Hlífðargas fyrir MAG – suðu á lágblönduðu stáli. Gott fyrir úðaboga, púlserandi boga og rapid-arc aðferðina. MISON® 8 dregur úr óson- og reykmyndun við suðu og bætir þannig vinnuumhverfi suðumannsins.
Eiginleikar:
- Blanda: Argon með 8% CO2 + 0,03% NO
- Vottaður hreinleiki: Ar 4.6 og CO2 3.0
- Þrýstingur: 200 bör við 15C og 1013 mbör
- Flaskan er ljósgrá með grænum öxlum og tveimur gulum röndum í miðju
- Loki er W 24.32 x 1/14” (DIN 10)
Hægt er að fá MISON
® 8 í þremur stærðum sem 12 hykja búnt, og í hylkjastærðum 50l og 20l.
MISON® 2
Alhliða hlífðargas fyrir MAG – suðu á öllum gerðum af ryðfríu stáli. Gott fyrir stuttboga, úðaboga og púlserandi boga. MISON
® 2 dregur úr ósonmyndun við suðu og bætir þannig vinnuumhverfi suðumannsins.
Eiginleikar:
- Blanda: Argon með 2% CO2 + 0,03% NO
- Vottaður hreinleiki: Ar 4.6 og CO2 3.0
- Þrýstingur: 200 bör við 15C og 1013 mbör
- Flaskan er ljósgrá með grænum öxlum og þremur gulum röndum í miðju
- Loki er W 24.32 x 1/14” (DIN 10)
Hægt er að fá MISON 2 í tveimur stærðum, í hylkjastærðum 50l og 20l.
MISON® H2
Fyrir TIG-suðu á austernitísku riðfríu stáli og nikkelblöndum. Íblöndun vetnis eykur suðuhraða og/eða innbræðslu og niðurstaðan er slétt og oxíðlaus suða, sem þýðir minni eftir meðhöndlun suðunnar. Gasið er einnig mjög gott sem hlífðargas við Orbital – suðu þar sem gerðar eru miklar kröfur um gæði og góða gegnumsuðu. MISON H2 dregur úr ósonmyndun og bætir þannig vinnuumhverfi suðumannsins.
Eiginleikar:
- Blanda: Argon með 2% Vetni + 0,03% NO
- Þrýstingur: 200 bör við 15°C og 1013 mbör
- Flaskan er ljósgrá með grænum og rauðum öxlum.
- Loki er W 24.32 x 1/14” (DIN 10)
Hægt er að fá MISON H
2 í tveimur stærðum sem 12 hykja búnt, og í hylkjastærðinni 50l.
MISON® 18
Alhliða hlífðargas til suðu á lágblönduðu stáli með massívum eða rörþræði (FCAW). Hægt er að nota gasið við stuttboga, úðaboga og púlserandiboga. Einnig besta val við suðu á ryðfríu stáli með rörþræði. MISON 18 dregur úr óson- og reykmyndun við suðu og bætir þannig vinnuumhverfi suðumannsins.
Eiginleikar:
- Blanda: Argon með 18% CO2 + 0,03% NO
- Vottaður hreinleiki: Ar 4.6 og CO2 3.0
- Þrýstingur: 200 bör við 15C og 1013 mbör
- Flaskan er ljósgrá með grænum öxlum og gulri rönd í miðju
- Loki er W 24.32 x 1/14” (DIN 10)
Hægt er að fá MISON
® 18 í fjórum stærðum sem 12 hykja búnt, og í hylkjastærðum 50l, 20l og 10l
MISON® Ar
Hlífðargas fyrir TIG-suðu á lágblönduðu stáli, fyrir allar gerðir á ryðfríu stáli (austernitískt, ferritískt, martenitískt og duplex). MISION Ar hentar sérlega vel til TIG- og MIG-suðu á áli. Einnig er hægt að nota gasið við MIG-suðu á superduplex, háblönduðum og super austernitískum efnum. MISON dregur úr ósonmyndun og bætir þannig vinnuumhverfi suðumannsins.
Eiginleikar :
- Blanda: Argon með 0,03% NO.
- Flaskan er ljósgrá með grænum öxlum.
- Þrýstingur 200 bör við 15C og 1013 mbör.
- Loki er W 24.32 x 1/14” (DIN 10)
Hægt er að fá MISON
® Ar í fimm stærðum sem 12 hylkja búnt og í hylkjastærðum 50l, 20l, 10l og 5l.