popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Vetni

Vetni er lit-, lyktar,- bragðlaus og óeitruð en eldfim gastegund við stofuhita og venjulegan loftþrýsting. Gastegundin brennur í andrúmsloftinu með ljósbláum, nánast ósýnilegum loga. Vetni er léttast allra gastegunda, u.þ.b. einn fimmtándi af þyngd andrúmslofts. Vetni verður fljótandi við -253°C.

Vetni er framleitt ýmist með rafgreiningu vatns, metan-vatnsgufu ummyndun eða með hlutoxun kolvetna.

Vetni er notað í miklu magni sem hráefni í framleiðslu ammóníaks, metanóls, vetnisperoxíðs, fjölliðunga og leysiefna. Það er einnig notað við að herða ýmsar dýra- eða plöntuolíur og í framleiðslu vítamína og annarra lyfja. Vetni er einnig nýtt í hitameðferð, glerbræðslu, suðu og aðra málmvinnslu sem afoxandi verndarhjúpur.


Hydrogen is used in glass production