Helíum er eðalgastegund og er lit-, lyktar- og bragðlaus. Helíum er annað léttasta frumefnið og er einn sjöundi af þyngd andrúmslofts. Það er óvirkt, leysist illa í vatni og brennur hvorki né springur. Helíum er einnig kaldasti þekkti vökvinn, hiti -269°C.
Þrátt fyrir að vera til í ríkum mæli, er erfitt að nálgast það. Helíum er aðallega unnið úr jarðgasi sem inniheldur 1 – 7% helíum. Slíkar uppsprettur eru sjaldgæfar og finnast á einstökum svæðum í Bandaríkjunum, Kanada, Póllandi, Rússlandi og Afríku.
Helíum er helst notað í vinnslu sem nýtir kuldann, óvirknina eða hve létt það er. Sem kæliefni er helíum notað í rannsóknir, segulómmyndatökur (NMR) og ýmsa greiningar- eða framleiðsluferla. Helíum er einnig notuð við suðu, skurð eða lasertækni. Við köfun, lekaleit og í blöðrur eru eiginleikar helíums nýttir.