Meðhöndlið og geymið þurrís á réttan hátt.
Farið eftir öryggisleiðbeiningum þegar þurrís er meðhöndlaður.
- Notið ávallt einangrunarhanska. Þar sem þurrísinn er -79°C er hann mun kaldari en ís gerður úr vatni. Bein snerting við húð getur valdið alvarlegum kalsárum. Fyrsta hjálp: Verjið kalsárin með hreinni og þurri grisju og leitið til læknis.
- Setjið aldrei þurrís upp í munn. Fyrsta hjálp: Leitið til læknis strax.
- Þegar þurrís er fluttur í fólksbíl, hafið ísinn í öðru rými einangruðu frá bílstjóra og farþegum ásmat góðri loftræstingu.
- Geymið ekki þurrís í kjöllurum eða þröngum lokuðum rýmum. Yfirvöld flokka þurrís sem hættulegan varning með þekkta skaðlega þéttni, 0.5% í 8 klst. Þar sem koldíoxíð leysir súrefni af hólmi getur óhóflegt magn koldíoxíðs í andrúmslofti valdið kæfingu. Fyrsta hjálp: flytjið sjúklinginn í ferskt loft og notið tæki til að aðstoða við öndun eftir þörfum. Einnig getur þurft að gefa sjúklingi súrefni. Þegar því er lokið skal leita til læknis.
- Koldíoxíð er þyngri en andrúmsloft og þess vegna safnast koldíoxið saman við gólf eða lægsta punkt.
- Samskeyti við lok umbúða fyrir þurrís má ekki loka að fullu, t.d. með því að nota límband. Geymið aldrei þurrís í loftþéttum umbúðum þar sem mikil þrýstingur mun myndast í umbúðunum. 10 kg af þurrís verða að 5 rúmmetrum af gasi.
- Varist að börn nái til þurríss. Jafnvel lítil kúla af þurrís getur valdið slysi við snertingu eða neyslu.
Fylgið öryggisleiðbeiningum.