popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Meðhöndlun hylkja

Gashylki ÍSAGA eru hönnuð og framleidd í samræmi við staðla. Þessir staðlar segja til úr hvaða efni hylkin skulu gerð, hvaða framleiðsluaðferð er notuð, hvernig skuli þrýstiprófa þau, hámarksþrýstingur við áfyllingu og hvernig skuli prófa þau á notkunartímanum.

Viðhald og prófun hylkja
Ef þú átt hylkin þín þarftu skv. lögum að láta framkvæma viðhald og prófun á hylkjunum. En ef hylkin eru leigð af ÍSAGA, þá eru hylkin í eigu fyrirtækisins og sér það til þess að hylkjaviðhald og prófanir séu framkvæmdar.

Ventlar og öryggishettur
Öll hylki ÍSAGA sem innihalda gastegundir undir miklum þrýstingi hafa loka sem má alls ekki taka úr eða fikta við á neinn hátt nema til að herða þéttingu á viðtengingu. Sum hylki hafa einnig öryggishettu yfir loka sem gefur til kynna að búið sé að fylla á og skoða hylkið. Hver loki hefur sérstakar gengjur sem hentar fyrir hefðbundna þrýstijafnara sem hægt er að nálgast hjá samstarfsaðilum ÍSAGA.

Allir lokar á hylkjum, sama hvort hylkið inniheldur eldfimt eða óvirkt gas eru opnaðir með því að snúa lokanum rangsælis.


MIKILVÆGT!

  • Opnið ALDREI loka Acetylen hylkis alveg. Hálfhringur er nóg.
  • Skiljið ALDREI opinn loka nokkurs hylkis alveg í efstu stöðu.
  • Eigið ALDREI við hylkið á neinn hátt. Hafið samband við söluaðilann ef eitthvað er að.
  • Reynið ALDREI að lagfæra hylkið.
  • Hyljið ALDREI skemmdir á hylki.
  • Blandið ALDREI gastegundum saman í hylki.
  • Flytjið ALDREI gas yfir í annað hylki.
  • Eyðið ALDREI hylki sem er ekki í þinni eigu.
  • Notið ALDREI millistykki, þrýstijafnara eða slöngur sem ekki eru samþykktar fyrir viðeigandi gastegund.

Öryggislokar
Öryggislokar eru hannaðir fyrir ákveðin hylki. Þeir geta verið notaðir til að gegna ýmsum hlutverkum, m.a.:
  • Öryggislokar (sem lokast aftur þegar kjörþrýstingi er náð) eða öryggislokar með öryggisdiski sem opnast einu sinni (sem tæma hylkið algjörlega).
  • Öryggislokar með öryggisdiski er hluti af hylkjalokanum.
Handling cylinders