Þetta er kynning á lofttegundum. Hér getur þú kynnst því hvernig lofttegundir, gastegundir, eru framleiddar og nýttar í mjög margar vörur sem við notum daglega. Andrúmsloftið í kringum okkur er blanda af mörgum lofttegundum, en þrjár þeirra eru langstærstur hluti loftsins, nitur, súrefni og argon . Taflan og kökuritið sýna hlutfall þessara gastegunda í andrúmsloftinu.

Hlutfall helstu gastegunda í andrúmsloftinu
Köfnunarefni, nitur, N2 78.08%
Súrefni, oxygen, O2 20.95%
Argon, Ar 0.93%
Aðrar gastegundir 0.04%
Andrúmsloft er hráefnið sem notað er til að framleiða þessar gastegundir. Eftir að gastegund hefur verið aðskilin er öðrum gastegundum skilað út í andrúmsloftið. Mikilvægustu vörur ÍSAGA eru súrefni, köfnunarefni og argon.
Algengasta aðferðin til að aðskilja gastegundirnar úr andrúmsloftinu er með kælingu.
Andrúmsloft þéttist og verður fljótandi við -194°C. En þar sem mismunandi gastegundir hafa mismunandi suðumörk, er hægt að aðskilja gastegundir með eimingu. Fyrst sýður köfnunarefni með suðumark -196°C, þar á eftir argon við -186°C og að lokum sýður súrefni við suðumark -183°C.
Gastegundin með lægsta suðumarkið aðskilur sig frá fljótandi andrúmsloftinu og stígur upp. Þar uppi er hitastigið látið vera lægra og gastegundin þéttist á ný og er safnað á fljótandi formi.
Eðalgastegundirnar neon, krypton og xenon er hægt að framleiða með áþekkri framleiðsluaðferð.
 | Nitrogen
Köfnunarefni | Hydrogen
Vetni | Oxygen
Súrefni | Carbon Dioxide
Kolsýra | Noble Gases Eðalgastegundir |
| Eiginleikar |  |  |  |  |  |
 |  |  |  |  |  |
| Notkun |  |  |  |  |
Smelltu á myndirnar til að fræðast nánar um þessar gastegundir.