popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Metan fyrir bifreiðar

Metan til notkunar fyrir bifreiðar er 97% hreint metan, en afgangurinn er blanda af koldíoxíði og andrúmslofti. Metan er aðallega búið til við hreinsun á jarðgasi, en einnig á lífrænan hátt með niðurbroti sorps.

Helsta hráefnið sem er notað til að framleiða metan, er:

  • Botnfall frá skólphreinsistöðvum
  • Heimilissorp
  • Úrgangur af búum, t.d. svína- eða kjúklingabúum.

Óhreinsað metan hefur verið nýtt til upphitunar. Metan fyrir ökutæki þart að vera þurrt, hreint og lyktarlaust. Þess vegna er það hreinsað og sett fljótandi form til að auðvelda geymslu.

Magnið af metani sem geymt er í hefðbundnum metantanki bifreiðar mun duga til 200-400 km aksturs. Flestar bifreiðar eru hannaðar til að nýta bæði metan og bensín. Þær bifreiðar sem bjóða upp á báða möguleika eru jafn öruggar og aðrar, eldsneytistanknum er komið fyrir á öruggan hátt og stöðluð próf sýna að metankerfið veldur ekki aukinni áhættu.

Metan er 45% léttara en andrúmsloft og mun stíga hratt upp og blandast andrúmsloftinu. Orkuinnihald er nánast það sama og bensíns.
  • 1m3 metan = 9.8 kWh
  • 1 lítri bensín = 8.8 kWh

Kveikjuhiti í andrúmslofti
  • Metan 540°C
  • Bensín 228°C
  • Dísel olía 260°C

Metan, til notkunar fyrir bifreiðar
  • 97% metan, afgangurinn blanda af koldíoxíðii og andrúmslofti
  • Hlutfallsleg þéttni (andrúmsloft = 1) 0,555
  • Eldfimimörk í andrúmslofti við 20°C: 5-15%
  • Hitastig fljótandi metans: -161°C
Biogas