Í júní hélt starfsmaður Ísaga, Helgi Magnússon, á Ólympíuleika fatlaðra í Aþenu. Þar keppti hann fyrir Íslands hönd í fimleikum og stóð sig frábærlega.
Þegar leikunum lauk hafði Helgi tryggt sér fern verðlaun, silfur í stökki og æfingum á bogahesti og brons á gólfi og í hringjum. Hann náði svo í fjórða sæti á tvíslá.
Við óskum Helga innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.