popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3

ÍSAGA ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Ísland

Sími: +354 577 3000
Fax: +354 577 3001
Tölvupóstfang: sala@is.aga.com
Hefðbundinn  Stærri  Stærstur

Viljayfirlýsing um samstarf við PrimaCare

Föstudaginn 29.janúar skrifuðu Linde Healthcare (ÍSAGA) og einkahlutafélagið PrimaCare ehf. undir viljayfirlýsingu um samstarf.
PrimaCare ehf vinnur að því að reisa spítala fyrir liðskiptiaðgerðir og hótel á Tungumelum í Mosfellsbæ. Gert er ráð fyrir að spítalinn verði um 100-120 herbergja og hótelið allt að 250 herbergja. Áætlað byggingarmagn er um 30.000 fm. Gert er ráð fyrir að fyrsta skóflustunga verði tekin haustið 2010 eða í byrjun vetrar sama árs og að fyrstu aðgerðir fari fram í október 2012.


Samstarfsaðilar PrimaCare eru fjölmargir en þá helstu má nefna Ístak hf., arkítektinn Carlos Zapata og félaga hans í íslensku arkítekta stofunni ABZ og amerísku félögin Shiboomi, Skanska USA og Hill International ásamt Svissneska félaginu Oppenheimer Investment Group.

Linde Healthcare kemur að verkefninu með heildarlausnir á sviði lækninga, þar á meðal lyfjalofttegundir, búnað, flutning, tækniþjónustu og þjálfun. Þessar lausnir skipta miklu máli í læknisþjónustu og heimahjúkrun.

Linde Healthcare fagnar samstarfi við PrimaCare, frumkvöðlafyrirtæki með metnaðarfull áform og hugsjónir.