AGA styður umhverfisrannsóknir á þynningu ósonlagsins
Móðurfélag AGA, The Linde Group hefur skrifað undir samning um afhendingu á fljótandi helíumi og köfnunarefni ásamat öðrum háhreinum gastegundum, svo sem helíumi, kolmónoxíði og lyfjasúrefni til alþjóðlegs raunvísindahóps sem stýrt er af Jülich Research Centre í Þýskalandi. Gastegundirnar verða notaðar í mikilvægum loftslagsrannsóknum til að meta áhrif loftslagsbreytingar á ósonlagið. Gastegundirnar verða afhentar af AGA í Svíþjóð.
Verkefnið sem nefnist RECONCILE, verður framkvæmt sem röð af flugferðum frá Arena Arctica herstöðinni, nálægt Kiruna í norður Svíþjóð. Flugferðirnar verða tíu talsins og verða farnar á milli janúar og mars 2010. Rússar útvega flugvélina sem notuð verður í leiðangrana og er það M55, fyrrum könnunarvél sem nefnis Geophysica. Hún getur flogið í yfir 20 km hæð. RECONCILE og úrvinnsla rannsóknargagna verður framkvæmd af sautján samstarfsaðilum frá níu löndum, þar á meðal Jülich og Karlsruhe rannsóknarmiðstöðva í Þýskalandi, Háskólanum í Cambridge, NASA í Bandaríkjunum, norsku rannsóknarmiðstöðinni fyrir loftför og þýsku geimferðamiðstöðinni.
Veðurfarsbreytingar sem að stórum hluta eru af manna völdum, með losun gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið, eru taldar hafa áhrif á efnasamsetningu og eðli heiðhvolfsins sem veldur skorti af ósoni. Ósonskortur getur svo valdið frekari breytingum á veðurfari, sem getur leitt af sér enn frekari skemmdir á andrúmsloftinu. Rannsóknarverkefnið mun veita innsýn í hvernig þessi keðja af óson- og veðurfarsbreytingum vinnur saman og gefur möguleika á langtíma spám um breytingar á ósonlagi og veðurfari.
“Linde er mjög ánægt að geta starfað með Jülich rannsóknarmiðstöðinni og séð RECONCILE fyrir þeim gæða gastegundum sem þörf er á fyrir þetta mikilvæga umhverfisverkefni. “ segir Nina Schroder, sölustjóri háhreinna gastegunda hjá AGA í Svíþjóð. “ Á meðan alþjóðasamfélagið vinnur að því að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda, hefur orðið nauðsynlegt að fylgjast með og mæla áhrif okkar á umhverfið. Stuðningur fyrirtækisins við verkefnið er í fullu samræmi við markmið Linde að lágmarka umhverfisáhrif.”
Geophysica mun fljúga með háþróuð rannsóknartæki, þar á meðal helíumkældan sjónauka og efnagreiningartæki sem stýrt er af Jülich rannsóknarmiðstöðinni og háskólanum í Wuppertal. Tækin mæla efnasamsetningu og eiginleika agna með því að mæla útfjólubláa geislun. Með því að veita innsýn í hvernig óson og veðurfarsbreytingar hafa áhrif á hvort annað, verður hægt að spá fyrir um langtíma breytingar á þessu tvennu.
“Aukinn skilningur á samsetningu andrúsmloftsins mun stuðla að betri spám um fyrirsjáanlegar breytingar á ósonlaginu og hvernig þær breytingar hafa áhrif á og breytast með loftslagsbreytingum.” sagði Dr. Fred Stroh, Institute for Chemistry and Dynamics of the Geosphere, Jülich rannsóknarmiðstöð. “RECONCILE mun vera mikilvægur þáttur í að öðlast þennan skilning og við erum ánægð að vera í samstarfi við fyrirtæki á borð við Linde.”
AGA styður umhverfisrannsóknir á þynningu ósonlagsins -
AGA styður umhverfisrannsóknir á þynningu ósonlagsins -
AGA styður umhverfisrannsóknir á þynningu ósonlagsins -
AGA styður umhverfisrannsóknir á þynningu ósonlagsins -
AGA styður umhverfisrannsóknir á þynningu ósonlagsins -
AGA styður umhverfisrannsóknir á þynningu ósonlagsins - Panta
, No.
Panta
AGA styður umhverfisrannsóknir á þynningu ósonlagsins - Hafa samband