Að lyfta hylkjabúnti með krana
Að undanförnu hefur AGA skráð fjölda slysa þegar augu eða gálgi á hylkjabúntum brotnar þegar verið er að lyfta búntunum. Athugið: þessi búnt hafa einungis einn loka.
Vegna þessara slysa er tímabundið bannað að lyfta hylkjabúntum með því að krækja í gálgaauga á búntunum. Við ráðleggjum að notaðir séu gaffallyftarar til að lesta og aflesta farartæki.
Við ráðleggjum einnig öllum að nota gaffallyftara eða krossbönd, strengd undir hylkjabúntið. Lengd krossbandana skal vera um 2,5 metrar á hverri hlið og vera prófuð til að þola 2 tonna þyngd.
Endurnýjun á gálgum hylkjabúnta fer fram þegar búntin koma inn til áfyllingar hjá AGA. Endurnýjaðir gálgar verða merktir með rauðum lit. Endurnýjaðir og prófaðir gálgar á hylkjabúntum með rauðu merki má lyfta eins og fyrr þ.e. 1,5 metra frá undirlagi.
Athugið að hylkjabúnt eru ekki prófuð með það í huga að lyfta þeim hærra frá undirlagi en 1,5 metra. Einungis má nota samþykktan og prófaðan lyftibúnað til að lyfta hylkjabúntum yfir 1,5 metra frá undirlagi.
Til frekari upplýsingar, hafið samband við:
Erik Poulsen
+47 23 17 72 25
erik.poulsen@no.aga.com
Öryggisviðvörun - Panta
, No.
Panta
Öryggisviðvörun - Hafa samband