Meginregla
Þakka þér fyrir að heimsækja vef Ísaga og einnig fyrir þann áhuga sem þú sýnir fyrirtækinu og vörum okkar. Við tökum vernd persónugagna alvarlega og treystum á góða samvinnu. Vernd einkalífs þíns er okkur mjög mikilvæg og þess vegna förum við að lögum um persónuvernd. Starfsmenn okkar eru skyldaðir til að fara með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og fá þeir reglulega kennslu um gagnavernd og gagnaöryggi. Í köflunum hér að neðan munum við útskýra frekar hvernig við verjum gögnin og hvaða þýðingu það hefur þegar þú nýtir þér vefþjónustu okkar.
Tengigögn
Þegar tengst er vef Ísaga, móttekur fyrirtækið tengigögn sem geymd eru til að fullnægja öryggi og auðveldar auðkenningu. Þessi gögn innihalda:
· Nafn vefþjónustuaðila þíns
· Frá hvaða landi er tengst
· Frá hvaða vef þér hefur verið vísað á vef okkar
· Þau leitarskilyrði sem voru notuð, ef þú kemur á vef okkar í gegnum leitarvef
· Undirsíður sem þú heimsækir
· Þann hugbúnað og stýrikerfi sem þú nýtir til að tengjast við vef okkar
· Þau gögn sem er halað niður af vef okkar (t.d. PDF eða Word skjöl)
· Lengd heimsóknarinnar
· Dagsetning og tími heimsóknarinnar
Þessi gögn eru nýtt til að greina hegðun notenda. Við notum engin persónugögn við þessa greiningu.
Persónuupplýsingar
Persónuupplýsingar eru upplýsingar sem eru sérstaklega nýttar til að þekkja þín einkenni. Þær innihalda upplýsingar líkt og nafn og heimilisfang eða tölvupóstfang. Slíkar upplýsingar eru einungis geymdar þegar þær eru gefnar af fúsum og frjálsum vilja t.d. sem hluti af skráningarferli, skoðanakönnun, samkeppni, vegna fyrirspurnar eða til að meðhöndla vefpöntun. Þar að auki eru persónuupplýsingar aðeins nýttar fyrir þá þætti sem gefið er samþykki fyrir. Til að tryggja örugga sendingu slíkra gagna eru þau dulkóðuð á vernduðum svæðum. Þetta þýðir að samskipti milli vafra og pöntunarkerfis okkar er t.d. ekki hægt að lesa af öðrum á netinu. Öll gögn eru geymd á sérstökum vernduðum vefþjónum Linde Group í Þýskalandi.
Framsal upplýsinga til þriðja aðila
Ísaga veitir í sumum tilfellum þjónustu í samstarfi við valda aðila. Þessir aðilar lúta að sömu lögum hvað varðar persónuvernd og eru innbyggðir í gagnavernd Ísaga. Persónuupplýsingar eru einungis framseldar:
Þegar vinnsla gagna tengdum pöntunum, svo sem vefpantana, fer fram og í einstökum tilfellum þegar samþykki hefur verið veitt.
Aðrar upplýsingar, svo sem upplýsingar um áhugamál (hafi þær verið gefnar upp) eru ekki framseldar til þriðja aðila. Persónuupplýsingar eru aðeins gefnar til ríkisstofnana innan þeirra heimilda sem lög um persónuvernd leyfa.
Eyðing persónuupplýsinga
Ef þú biður skriflega um að Ísaga hætti að nýta og/eða eyði persónugögnum, munum við gera það samstundis. Ef þú ert skráður notandi, bjóðum við einnig upp á að þú skoðir, breytir eða eyðir eftir hentugleika upplýsingum um þig.
Kökur (e. Cookies)
Kökur eru lítil textaskjöl sem eru nýtt af mörgum vefsíðum um allan heim. Kökur verða til á meðan á heimsókn þinni stendur á vefinn og eru vistaðar á harða disknum þínum af vefþjóni okkar. Kökurnar okkar geyma engar upplýsingar um einstaklinga, þar fyrir utan, geta aðeins okkar vefþjónar lesið kökur sem búnar eru til af þeim. Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir geta móttekið kökur. Ef þú vilt ekki nýta þér möguleika þeirra, þá er hægt að slökkva á móttöku kakanna í vafranum. Þú getur einnig skoðað vef Ísaga án kakanna, en það getur heft notagildi einhverra þátta vefsins.
Annað virkt efni (s.s. Javascript, ActiveX)
Javascript, ActiveX og önnur vefstjórnar forrit og forskriftir sem innihalda skipanir er hægt að slökkva á hvenær sem er með vafranum. Það er hægt að skoða vef Ísaga án Javascript.
Tenglar
Vefur Ísaga getur innihaldið tengla við aðrar vefsíður. Við leggjum okkur fram um að yfirfara þessa tengla, en þrátt fyrir það er Ísaga ekki ábyrgt fyrir efni vefsíðnanna sem tenglar vísa í. Ísaga er heldur ekki ábyrgt fyrir efni vefsíðnanna sem vísa á vef okkar.
Takmarkanir
Ísaga áskilur sér rétt til að breyta þessum viðmiðunarreglum fyrir gagnavernd hvenær sem er, til samræmingar við lög um persónuvernd.